18.3.2008 | 00:49
Auðvitað...
Að sjálfsögðu þurfa allir að vera með, annars er ekkert gaman að þessu
Að sjálfsögðu verður að grípa strax til aðgerða (hækkana) til þess að verða ekki fyrir tapi (græða minna en annars). Auðvitað verður fyrirtækin að vera fljót þegar gengið tekur heljarstökk aftur á bak því annars geta þau stórtapað. Að sjálfsögðu verða fyrirtækin líka að fara varlega þegar gengið tekur heljarstökk í hina áttina því heljastökkið getur hæglega endað með brotlendingu og því betra að vera við öllu búinn.......
Annars á ég erfitt með að skilja fjármál fyrirtækja, nógu erfið eru mín eigin fjármál. En ætla yfirvöld í alvöru ekkert að gera í því að skoða þessar hækkanir???? Ég er ekki að segja endilega að það eigi að lækka gjöld og skatta (væri ekki slæmt samt) heldur af hverju olíufélögin séu alltaf svo miklu fljótari með hækkanir en lækkanir þegar gengi eða heimsmarkaðsverð breytist.
Ég ætlaði annars að vera voða flottur og setja þetta röfl mitt í "færsluflokk" en var ekki viss hvort ég ætti að setja þetta í viðskipti og fjármál, sem þetta endaði í eða í dægurmál, stjórnmál og samfélag, lífstíl (bílar eru lífstíll) eða spaugilegt. Það vantar samt einn flokk finnst mér, "nöldur".
Atlantsolía hækkar verð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Um bloggið
Magnús Björnsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.