31.8.2009 | 11:00
Hmm...
Nú hef ég ekki lesið fréttina sjálfa úr Aftonbladet en geri ráð fyrir að einhverjir aðrir hafi verið duglegri en ég í þeim efnum. Var fréttin bara um meinta sölu líffæra úr Palestínumönnum eða var eitthvað annað í umfjölluninni sem fór fyrir brjóstið á Ísraelum, og sumum Ítölum?
Annars er ég stuðningsmaður málfrelsis og ritfrelsis og tel að ekki eigi að takmarka það.
![]() |
Ítalir vilja að ESB fordæmi Aftonbladet |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2009 | 09:40
Jón og séra Jón..
Hryðjuverkalög sett á vinaþjóð.....
Dæmdum hryðjuverkamanni sleppt úr fangelsi......
Spennandi að sjá hvort það sé rétt að bretar standi á bak við þetta síðarnefnda eins og menn vilja halda fram.
![]() |
Skoska þingið til neyðarfundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2009 | 09:04
Og mismunurinn fór...?
"...að 60% innlána hafi komið frá Bretlandi, eða 970 milljarðar króna. Á sama tímapunkti námu útlán til viðskiptavina í Bretlandi 538 milljörðum króna."
Mismunurinn á þessu er 432 milljarðar ef ég reikna rétt. Hvað varð um þá?
Síðan er það síðasti hlutinn sem ég á bágt með að skilja:
"Ef miðað sé við að svipuð fjárhæð hafi verið á Icesave-reikningum í lok júní og við hrun bankans, eða um fjórir milljarðar punda, námu bresku Icesave-innstæðurnar á þessum tímapunkti um 630 milljörðum króna. Samkvæmt þessu má því segja að stærstur hluti Icesave-peninganna hafi farið í bresk útlán. En einnig mætti taka svo til orða að Icesave-innstæðurnar hafi staðið undir útlánum bankans í Bretlandi."
Miðað við þetta er gert ráð fyrir að bara innistæður hafi breyst í krónutölum en ekki útlánin. Ég er kanski bara að misskilja þetta á rangan hátt....
ps.
skrýtið að Icesave sé ekki komið inn í púka eins algengt og þetta orð er hér
![]() |
Hvert fóru Icesave-peningarnir? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.8.2009 | 10:01
Áfram sukkað?
Miðið við þessa frétt eiga starfsmenn ekki að fá bónus fyrir vinnu í ónýtum banka, þvert ofan á allar fréttir í gær. Maður verður að vona að þetta sé rétt.
Aftur á móti er gert ráð fyrir starfsmenn fái bónusa þegar búið er að koma bankanum aftur á flot. Menn gera sem sagt ráð fyrir að sama sukkið og vitleysan verði áfram. Telja menn þetta bara eðlilegan hlut, að starfsmenn fái fáránlega bónusa við það að græða sem hraðast (á pappírum) óháð því hvað gerst daginn eftir? Það þarf virkilega að taka til í þessum málum og jafnvel hugarfari ansi margra auk þess að setja stífar reglur um bónusa og aðrar sporslur.
![]() |
Gert ráð fyrir 50% endurheimtum af kröfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.8.2009 | 15:38
Æfir yfir....?
... því að dönsk fyrirtæki hafi líka verið að sukka?
... að það hafi verið gert opinbert að dönsk fyrirtæki hafi líka verið að sukka?
... að danskur almenningur gæti farið að spyrja óþægilegra spurninga?
... hættu á danskri búsáhaldabyltingu?
![]() |
Danir æfir yfir lekanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Magnús Björnsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar