Er álið málið????

Ef að maður tekur umhverfismálin út fyrir þetta dæmi núna þá má velta ákveðnum hlutum með fleiri álver fyrir sér og hversu góð þau séu til að redda okkur út úr vandanum sem við erum í núna.

  1. Álver verða ekki byggð á morgun eða næsta ári. Framleiðendur hafa ekki fjármagn umfram aðra (allir vita hversu erfitt er að nálgast það í dag) auk þess sem eftirspurn hefur minnkað og þar með þörf á nýjum álverum. Álversbyggingar geta líklega fyrst farið af stað um það leiti sem efnahagslífið fer að rétta úr kútnum, þar með talið hér á landi.
  2. Í dag er álútfluttningur um einn þriðji af útfluttningstekjum okkar íslendinga, rétt rúmlega það ef ég man rétt. Þegar búið er að byggja álver í Helguvík og á Húsavík verður þetta hlutfall mun meira, líklega yfir helmingur af tekjum okkar.

Þegar mögulegt verður að fara af stað í byggingu álvera, verður þá einhver þörf á slíkri innspýtingu lengur? Þetta er ekkert sem getur reddað okkur hér og nú. Viljum við verða svo háð álverunum sem allt stefnir í? Hvernig verður það þegar Alcoa verður komið með tvö risaálver á landinu og hafa þar með áhrif á kannski 1/4 af útfluttningstekjum okkar, verðum við ekki alveg undir hæl þeirra? Eða þegar Rio Tinto verður komið með álíka mikil áhrif? Er þetta virkilega það sem við viljum??

Umhverfismál eru síðan sér kafli sem ég ætla ekki að fara út í hér.


mbl.is Álið leysir vandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á hvað kaupa álrisarnir kílówattstundina? - 30aura? Við höfum ekki fengið að vita hvað álverksmiðjan á Reyðarfirði borgar fyrir rafmagnið. Það er örugglega hægt að fá alla álrisa heimsins til að setja upp verksmiðjur hér ef við gefum þeim raforkuna.

Kolla (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 13:36

2 identicon

Er þá ekki bara kominn tími til að tengja krónuna við verð á áli?  Taka upp "álfót" í stað "gullfótar" eins og var algengt í upphafi síðustu aldar.  Við vorum nú með krónu sem var slegin úr áli í gamla daga. Og hún flaut. Er ekki bara gjaldmiðilsmálið leyst?  Tökum upp krónu sem er tryggð með áli, þ.e.a.s. "álfót" og sláum álkrónur og fleytum þeim svo. Kannski á tjörninni?

En svona að öllu gamni slepptu, þá er ég alveg sammála um að nýta auðlindirnar. En er ekki alveg 'sold' á fleiri álverum. Ekki vegna þess að álver séu eitthvað slæm, heldur vegna þess að mér finnst við þurfum að vera með meiri fjölbreytni. 1/4 af útflutningstekjum af áli er alveg nóg. Er ekki frekar málið að fá hingað gagnaver, semiconductor framleiðslu eða eitthvað slíkt. 

Jonni (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 14:03

3 Smámynd: Mofi

Fjölbreytni er málið. Í dag er hugvitið það sem gildir og það er afskaplega lítið hugvit á bakvið hugmyndir um enn fleiri álver. Nei, með þessu útspili þá strikaði sjálfsstæðis flokkurinn sig algjörlega út sem einhver kostur í þessum kosningum.

"og hún flaut"   góður Jonni :)

Í umræðu um efnahagsmál þá langar mig að minna á myndina The Money Masters ; gaf mér nýja sýn á þessi mál og þá sérstaklega hvort það er góð hugmynd að taka upp evru eða hvort það er mikil blessun að hafa stjórn á okkar eigin gjaldmiðli.

Mofi, 22.4.2009 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Magnús Björnsson

Höfundur

Magnús Björnsson
Magnús Björnsson
Þetta er hugsað sem athvarf fyrir ruglingslegar hugsanir höfundar og almennt bull.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 131

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband